Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur í Garðabæ stofnaði Gospelkór Jóns Vídalíns árið 2006 og hefur verið verkefnastjóri kórsins frá upphafi.
Gospelkór Jóns Vídalíns hefur því starfað um árabil. Kórinn hefur einnig verið samstarfsverkefni Vídalínskirkju í Garðabæ og FG í gegnum árin, en þátttaka í kórnum gefur einingar við skólann.

Æfingar kórsins eru á þriðjudagskvöldum frá kl.20-21:30 í Vídalínskirkju.

Fyrsti kórstjórinn var Þóra Gísladóttir tónlistarkennari og söngkona en eftir henni komu María Magnúsdóttir sönkona og Ingvar Alfreðsson tónlistarmaður. Davíð Sigurgeirsson tónlistarmaður hefur stýrt kórnum síðan 2014.

Gospelkórinn heldur tónleika að lágmarki tvisvar á ári bæði fyrir jólin og á vorin. Einnig kemur kórinn fram í helgihaldi Vídalínskirkju og við ýmis mikilvæg tilefni hér og þar, eins og t.d. í tilefni af afmæli Garðabæjar.
Kórinn hefur tvisvar fengið hvatningarverðlaun Garðabæjar.
Gospelkórinn setti upp söngleikinn Godspell eftir Stephens Schcwartz vorið 2016 í Vídalínskirkju, en það er í fyrsta sinn á íslandi sem þessi söngleikur er fluttur í heild sinni.
Kórinn hefur einnig gefið út geisladisk og sungið inn á Disney bíómynd, þannig að verkefnin eru fjölbreytt. Að auki hefur kórinn sungið reglulega á stórtónleikum í Eldborg og farið utan í tónleikaferðir.
Aðeins tveir kórfélagar hafa verið með frá upphafi, en kórinn endurnýjar sig reglulega, þannig að það eru mörg hundruð ungmenni sem hafa farið í gegnum þetta tónlistarstarf. Kórinn hefur verið mörgum stór áskorun að þora að koma fram og syngja einsöng. Þrír fyrrum kórfélagar hafa tekið þátt í The Voice og komist í úrslit, sem er magnað.

Kórinn heitir eftir Jóni Vídalín biskup sem fæddist á Garðaholtinu og varð einn merkasti maður 17 aldar.
Kórstjóri er Davíð Sigurgeirsson.