Yngri barnakórinn er metnaðarfullt og fjörugt tónlistarstarf fyrir börn á aldrinum 6-9 ára (1.-4. bekkur). Í kórnum er lögð áhersla á að börnin læri að njóta þess að syngja saman, sýni hvort öðru samkennd og æfi sig í að koma fram. Lagavalið er fjölbreytt þar sem bæði eru sungnir barnasálmar og vinsæl dægurlög. Barnakórinn kemur mánaðarlega fram í fjölskylduguðsþjónustum í Vídalínskirkju.
Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Í beinu framhaldi af æfingu yngri barnakórsins er Vinadeild fyrir 6-9 ára.
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi