Kór Vídalínskirkju, sem skipaður er fjölmörgum öflugum söngsnillingum, fagnar nú vorinu með fallegum tónleikum sem án efa verða eftirminnilegir á margan hátt. Strengasveitin Spiccato og söngkonurnar Erla Björg Káradóttir, Hallveig Rúnarsdóttir og Særún Rúnudóttir koma fram með kórnum og setja svip sinn á tónleikana.
Kórstjórinn Jóhann Baldvinsson hefur undirbúið og valið verkefni fyrir þessa tónleika auk þess að útsetja mörg þeirra. Hann segir: „Í vetur hef ég undirbúið og valið verkefni fyrir þessa tónleika, kórverk sem á einhvern hátt hafa fylgt mér, verið mér kær eða mér þótt vera þess verð að flytja. Þar eru verk sem ég kynntist bæði þegar ég söng sjálfur með kórum eða kynntist í námi bæði hér heima og erlendis. Það var ekki auðvelt að grisja langan lista af verkum en tókst að lokum. Þetta eru verk úr ýmsum áttum með eða án undirleiks. Útkoman verður flutt á þessum tónleikum.“
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og aðgangur öllum heimill.