Það verður mikið um dýrðir á vorhátíð sunnudagaskólanna í Urriðaholti og Vídalínskirkju. Hoppukastalar, dansleikur með Benna Sig. og grillaðar pylsur. Barnakórar Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhönnu Guðrúnar við undirleik Vignis Þórs Stefánssonar.
Sr. Matthildur Bjarnadóttir, Benedikt Sigurðsson og fræðarar sunnudagaskólans leiða stundina.
Verið öll velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur!