Kynningarfundir á 12 spora starfi Garðaprestakalls verða fyrstu þrjú miðvikudagskvöldin í október. Samverurnar hefjast kl. 20:00 og verða í safnaðarheimili Bessastaðasóknar að Brekkuskógum 1 á Álftanesi.
Fyrsti fundurinn verður 7. október en 14. og 21. október verða einnig opnir kynningarfundir en á fjórða fundi 28. október er reiknað með að þeir mæti sem ætla að vera með í vetur. Eftir það verður ekki unnt að bæta fleirum við.
Vinir í bata er hópur fólks sem tileinkar sér Tólf sporin sem lífstíl.
Allir velkomnir - ekkert þátttökugjald.
Nánari upplýsingar í myndböndunum hér að neðan og á vefsíðunni Vinir í bata.