Tónlistarguðsþjónusta í Vídalínskirkju kl. 11:00 þar sem allir sálmar sem fluttir verða eru eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason. Sr. Benedikt Sigurðsson þjónar fyrir altari. Tónlistarflutningur verður í höndum Jóhanns Baldvinssonar og Kórs Vídalínskirkju.
Í messunni verður samstarfsverkefni Vídalínskirkju og Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ, kynnt. Verkefnið er hluti af Kirkjulistaviku Kjalarnessprófastsdæmis 8.- 15. febrúar, en yfirskrift vikunnar er: "Í skugga vængja þinna".
Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 (ath. gengið er inn um aðalinngang skólans).
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 11:00.