Sunnudaginn 9. ágúst verður hin árlega hjólreiðamessa safnaðanna í Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ. Lagt verður af stað frá tveimur stöðum, Vídalínskirkju og Ástjarnarkirkju, klukkan 9:30 og hóparnir sameinast svo í Hafnarfjarðarkirkju og halda þaðan áfram. Stöðvað verður við Fríkirkjuna í Hafnarfirði og þaðan hjólað í Víðistaðakirkju þar sem hressing bíður hópsins. Hjólatúrinn endar í sumarmessu í Garðakirkju.
Sr. Bragi J. Ingibergsson og sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur Kjalarnessprófastsdæmis, þjóna fyrir altari og predika. Kristín Jóhannesdóttir organisti stýrir tónlistinni.
Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu í messukaffinu í hlöðunni á Króki að messu lokinni.
Brottfarartímar:
Tökum þátt og eflum líkama, sál og anda!
Verið öll hjartanlega velkomin.