Sumarmessa í Garðakirkju kl. 11.00. Sr. Sighvatur Karlsson predikar og þjónar fyrir altari. Kristján Hrannar Pálsson organisti sér um tónlistina. Egill Þórðarson loftskeytamaður fjallar um Júlí sjóslysið, sem átti sér stað í febrúar 1959, í messukaffinu í hlöðunni á Króki á eftir messu. Beint streymi á facebook.com/sumarmessur. Sumarmessur eru samstarfsverkefni safnaðanna í Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ og eru í Garðakirkju kl. 11 alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst.
Kristján Hrannar Pálsson organisti er skapandi maður og hefur komið víða við í tónlistinni þó ungur sé. Lært klassískan píanóleik, svo á jazzpíanó, þá greip orgelið huga hans og hann tók kirkjuorganistapróf. Samið lög og texta, verið útsetjari og framleiðandi. Leikur á píanó, kontrabassa, harmonikku og gítar. Gaf út sólplötu Anno 2013, þar sem hann sló í gegn sem raftónlistarmaður. Árið 2016 gaf hann út spunaplötuna Artic Take One þar sem loftslagsbreytingar koma við sögu og hann flutti erindi um verkið á Artic Circle-ráðstefnunni í Hörpu. Á myndinni hér að neðan er Kristján Hrannar Pálsson organisti. (Mynd og texti um KHP: kirkjan.is)
Síðutogarinn Júlí fórst á Nýfundalandsmiðum 7. eða 8. febrúar árið 1959. Alls voru ellefu íslenskir síðutogarar á miðunum ásamt togurum frá öðrum löndum, sem sumir fórust, þó enginn hinna íslensku togaranna þótt naumu hefði munað. Óveðrið skall á um kl. 18:00 þann 7. febrúar og versnaði veðrið eftir því sem leið á kvöldið og aðfaranótt þess áttunda. Íslensku togararnir komust af þótt ganga mætti kraftaverki næst um suma þeirra, enda unnu áhafnir þeirra sleitulaust í rúman sólarhring við að berja ís og klaka af skipunum. Loks þegar menn náðu vopnum sinum á mánudeginum kom í ljós að Júlí vantaði. Benedikt Ögmundsson, skipstjóri á Júní GK, lét senda skeyti þessa efnis til Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar klukkan tíu um kvöldið og bað um að Júlí yrði leitað úr lofti, þar sem ekkert veður væri til leitar á sjó. Ekkert spurðist til Júlí eða áhafnar hans en Egill, sem þekkir söguna betur en flestir núlifandi, hefur tekið saman gögn um slysið og greinir nánar frá því sem gerðist. Á myndinni hér að neðan er Egill Þórðarson loftskeytamaður og sr. Þorvaldur Karl Helgason í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju 19. apríl síðastliðinn þar sem þeir voru heiðraðir fyrir óeigingjarnt og þakklátt starf í þágu minningar um látna sjómenn. Það voru Sjómannadagsráð, Hafnarfjarðarhöfn og gamlir síðutogaramenn sem kalla sig „Tekið í blökkina“ sem heiðruðu þá félaga. (Texti og mynd: sjomannadagurinn.is – Mynd/EÖJ).
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi