Sumarmessa kl. 11.00. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson þjónar fyrir altari.
Örn Magnússon organisti og Ásta Sigríður Arnardóttir sjá um tónlistina.
Örn er manna fróðastur um íslensk hljóðfæri og mun í guðsþjónustunni og messukaffinu á eftir segja frá sögu þeirra og sýna. Ásta Sigríður er söngkona, sem útskrifaðist frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2023. Beint streymi á facebook.com/sumarmessur.
Verið innilega velkomin í Garðakirkju á sunnudag kl. 11 og kaffi í hlöðunni á Króki á eftir.
Sumarmessur í Garðakirkju er samstarfsverkefni safnaðanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.