Styrktartónleikarnir ,, bleikur djass"

Einstakir tónleikar þar sem jazz, hlýja og samstaða mætast til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðinni fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.

Agnar Már Magnússon, Nicolas Moreaux, Ómar Guðjónsson og Ragnheiður Gröndal töfra fram jazztónlist af bestu gerð, meðal annars með nýstárlegri túlkun sálma og tónlist sem sækir innblástur í kirkjulega hefð.

Systurnar Auður og Guðbjörg Pálsdætur deila reynslu sinni.

Aðgangseyrir er 5.000 kr. og rennur óskiptur til Ljóssins.

 

Tónleikarnir eru í tilefni af bleikum október og fer allur ágóði af tónleikunum til styrktar Ljósinu, endurhæfinga-og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.

 

Smelltu hér til að kaupa miða

Vídalínskirkja
17:00
Agnar Már Magnússon
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta