Þriðjudaginn 7. apríl drögum við fram spilin og skemmtum okkur við að spila létt spil sem allir kunna eins og t.d. Ólsen ólsen. Sr. Benedikt Sigurðsson stjórnar spilamennskunni af sinni alkunnu snilld og dregur svo fram dragspilið og leikur létt lög.
Kyrrðarstund hefst í Vídalínskirkju kl. 12:00 og opið hús í safnaðarheimilinu kl. 12:30.
Boðið er upp á súpu og brauð á vægu verði.
Allir eru velkomnir í kyrrðarstund í Vídalínskirkju og á opið hús í safnaðarheimilinu.
Ef einhver kann ekki reglurnar í Ólsen ólsen þá birtum við þær hér:
Ólsen ólsen er spil, spilað með venjulegum fimmtíu og tveggja spila spilastokki. Markmiðið með leiknum er að losa sig við öll spil á hendi og sá sem gerir það fyrstur vinnur.
Hvernig er spilað?
Leikendum eru gefin fimm spil hverjum og síðan bunkinn settur á mitt borðið við hliðina á einu spili sem snýr upp. Sá byrjar sem er á vinstri hönd þess sem gefur og spilað er réttsælis. Sá sem byrjar verður að setja niður spil af sömu sort og snýr upp og aðeins eitt í einu. Tvær leiðir eru til að skipta um sort. Það má breyta með áttu eða ef maður á tvö eða fleiri spil að sömu hæð (til dæmis tvær tíur eða þrjá gosa) má setja þau öll út og verður þá það spil sem er efst nýja sortin.
Ef leikandi getur ekkert gert dregur hann allt að þrisvar og ef hann getur ennþá ekkert gert eftir það, segir hann pass og þá á hinn að gera. Enn fremur verður að segja „ólsen“ þegar maður getur lokað, annað hvort þegar maður er aðeins með eitt spil eftir á hendi eða til dæmis tvö eins (tvær tíur sem dæmi) og „Ólsen ólsen“ þegar maður leggur niður síðasta spilið (eða spilin) og sigrar.
Ef leikmaður gleymir að segja "ólsen" þegar hann á eitt spil eftir og hinir leikmennirnir byrja umferðina sína og er leikmanninum bent á að hann hafi ekki sagt "ólsen", þá þarf sá leikmaður að draga 3 spil úr bunka sem refsingu.
Kyrrðar- og íhugunarstund er haldin hvern þriðjudag kl 12:00 í Vídalínskirkju. Kyrrðarstund er í formi stuttrar helgistundar þar sem fólk getur komið og setið í þögninni og íhugað, bæði fyrir stund sem hefst kl 12:10, sem og á meðan stundin fer fram. Leikin er falleg og róandi tónlist í bland við bænir og annað uppbyggilegt efni.