Sameiginleg messa Garðasóknar og Bessastaðasóknar verður í Vídalínskirkju sunnudaginn 24. maí kl. 11:00.
Sr. Benedikt Sigurðsson þjónar fyrir altari og predikar.
Álftaneskórinn syngur við undirleik Ástvalds Traustasonar. Álftaneskórinn er blandaður kór sem hefur starfað síðan árið 1981. Kórinn æfir og flytur bæði veraldlega og kirkjulega tónlist og leiðir söng við guðþjónustur í Bessastaðasókn.
Í messukaffinu eftir athöfn munu sr. Benedikt og Ástvaldur leika og syngja nokkur vel valin dægurlög.
Verið öll velkomin.