Safnaðarfundur verður haldinn í safnaðarheimili Vídalínskirkju, miðvikudaginn 4. febrúar kl. 17:30.
Síðastliðið haust ákvað sóknarnefnd Garðasóknar að Garðakirkjugarður skyldi verða sjálfstæður rekstraraðili með sér stjórn og fjárhag. Samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36 4. maí 1993 skal kirkjugarðsstjórn vera kjörin af safnaðarfundi.
Dagskrá fundarins:
- Staða Garðakirkjugarðs
- Kjör stjórnar Garðakirkjugarðs
- Önnur mál
Safnaðarmeðlimir eru hvattir til að sækja fundinn.
Sóknarnefnd Garðasóknar.