Nú er vetrarstarfið að hefjast og opið hús byrjar þriðjudaginn 15. september. Kyrrðarstund er ávallt á undan opnu húsi kl 12:00. Súpa og samfélag er þar strax á eftir eða kl. 12:30. Matarverð er 1.000 kr. Nokkrum sinnum yfir veturinn er boðið upp á veglegri mat og þá breytist verðið í samræmi við það sem er í boði hverju sinni - en verðið er ávallt hóflegt.
Dagskrá sepembermánaðar:
- 15. sept. – Súpa og spjall um sumarið og veturinn í vændum. Umsjón sr. Benedikt Sigurðsson.
- 22. sept. – Anna Sigríður Helgadóttir söngkona kemur með fallegan haustblæ.
- 29. sept. – Haustbingó - veglegir vinningar.
Verið öll hjartanlega velkomin!