Nú er vetrarstarfið að hefjast og opið hús byrjar þriðjudaginn 16. september. Kyrrðarstund er ávallt á undan opnu húsi kl 12:00. Súpa og samfélag er þar strax á eftir eða kl. 12:30.
Dagskrá sepembermánaðar:
- 16. sept. – Haustbingó. Bráðskemmtilegt bingó með fínum vinningum.
- 23. sept. – Kvartettinn Barbari. Færustu rakarasöngvarar landsins flytja hlýleg og skemmtileg lög í fjögurra radda samsöng.
- 30. sept. – Almar bæjarstjóri spjallar og situr fyrir svörum.