Opið hús í október

Nú er vetrarstarfið komið á fulla ferð og opið hús alla þriðjudaga. Kyrrðarstund er ávallt á undan opnu húsi kl 12:00. Súpa og samfélag er þar strax á eftir eða kl. 12:30.

Dagskrá októbermánaðar:
  •  7. okt. – Gleðisveitin kemur í heimsókn og leikur og syngur skemmtileg lög sem allir elska.
    Súpa og brauð - verð 1.000 kr.

  • 14. okt. – Bjartmar Guðlaugsson og Georg Grundfjörð koma í heimsókn.
    Kótelettur í raspi í matinn. Matarverð 3.000 kr.

  • 21. okt. – Særún Rúnudóttir sópransöngkona syngur falleg lög við undirleik Jóhanns Baldvinssonar.
    Súpa og brauð - verð 1.000 kr.

  • 28. okt. – Stása Þorvaldsdóttir syngur nokkur lög og spjallar við gesti opna hússins.
    Súpa og brauð - verð 1.000 kr.

Verið öll velkomin.

Vídalínskirkja, Safnaðarheimili Vídalínskirkju
Sr. Benedikt Sigurðsson
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson
Jóhann Baldvinsson
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta