Opið hús í nóvember

Kyrrðarstund er ávallt á undan opnu húsi kl 12:00. Súpa og samfélag er þar strax á eftir eða kl. 12:30.

Dagskrá nóvembermánaðar:

  •  4. nóv. – Guðbjörn Gunnarsson, rithöfundur og útvarpsmaður, kynnir bækur sínar tvær: „Það er svo margt sem þú veist að þú veist ekki, fyrr en þú veist það“ og „Vegpresturinn“. Í þeim deilir hann hugleiðingum um nærveru, ábyrgð og að láta verkin tala — að meta það sem okkur er gefið og hlúa að líkama og sál.

  • 10. nóv. – Róbert Halldórsson flytur fyrlestur sem hann kallar „Þú komst ekki svona langt til að komast ekki lengra“. Inntak fyrirlestursins er tvíþætt:

      • Hefur fólk orðið fyrir áfalli og ekki unnið úr því?
      • Hugafar og jákvæðni hjálpar mikið í veikindum.
  • 17. nóv. – Sigríður Schram segir frá merkilegu og fjölþættu starfi Sambands íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK) sem oft er nefnt Kristniboðssambandið. SÍK er landssamtök kristniboðshópa, félaga og einstaklinga sem vinna að kristniboði og hjálparstarfi.
  • 24. nóv. – Hildur Eir Bolladóttir, prestur og skáld, kynnir bók sína „Harmurinn í hlátrinum“. Hún hefur áður gefið út bókina Hugrekki – saga af kvíða sem tilnefnd var til Fjöruverðlaunanna 2017. Árið 2019 kom út eftir hana ljóðabókin Líkn og 2022 ljóðabókin Meinvarp. Hildur Eir gaf einnig út smásögu í Pastelritröðinni sem beri heitið Prestur fer á stefnumót. Harmurinn í hlátrinum er því hennar fimmta bók en einnig er hún kunn af pistlum sínum um málefni líðandi stundar.

 

Verið öll velkomin.

Súpa og brauð - verð 1.000 kr.

 

Vídalínskirkja, Safnaðarheimili Vídalínskirkju
12:00
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta