Opið hús 3. mars

Á opnu húsi þriðjudaginn 3. mars verður sr. Jóna Hrönn Bolladóttir með áhugavert erindi um lífið í Laufási. Bærinn Laufás er í Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð, er þekktur kirkjustaður og prestsetur í Þingeyjarsýslu. Prestsetur hefur verið í Laufási frá fyrstu kristni og kemur kirkjustaðurinn lítillega við sögu í Ljósvetninga sögu. Laufáskirkja var helguð Pétri postula. Jóna Hrönn bjó frá tveggja ára aldri að Laufási þar sem faðir hennar þjónaði sem prestur í tæp 30 ár.

Helgistund hefst í Vídalínskirkju kl. 12:00 og opið hús í safnaðarheimilinu kl. 12:30.

Boðið er upp á súpu og brauð á vægu verði.

Allir eru velkomnir á opið hús í safnaðarheimilinu.

Vídalínskirkja, Safnaðarheimili Vídalínskirkju
Þriðjudagur 3. mar
12:30
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta