Á opnu húsi þriðjudaginn 10. mars munu myndlistarkonurnar Aðalheiður Ólafsdóttir og Hulda HreinDal koma í heimsókn og tala um myndlist og málverkasýninguna sem verið hefur í Vídalínskirkju undanfarnar vikur. Þar sýna þær myndir sínar ásamt listakonunum Maríu Möndu og Maríu Rúnar Þrándardóttur. Sýningin hefur vakið mikla athygli bæjarbúa og fjölmargir hafa lagt leið sína í kirkjuna til að njóta myndanna.
Helgistund hefst í Vídalínskirkju kl. 12:00 og opið hús í safnaðarheimilinu kl. 12:30.
Boðið er upp á súpu og brauð á vægu verði.
Allir eru velkomnir á opið hús í safnaðarheimilinu.