Mynlistarsýning í Vídalínskirkju

Sunnudaginn 15. febrúar var opnuð myndlistarsýningin "Ég vil dvelja í skugga vængja þinna" í Vídalínskirkju. Þetta er samstarfsverkefni Vídalínskirkju og Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ. Þetta er jafnframt hluti af Kirkjulistaviku Kjalarnessprófastsdæmis, sem staðið hefur yfir 8.-15. febrúar.
Á sýningunni eru 21 málverk fjögurra listakvenna, Álfheiðar Ólafsdóttur, Huldu HreinDal Sigurðardóttur, Maríu Manda og Maríu Rúnar Þrándardóttur. Hægt er að skoða verkin á opnunartíma Vídalínskirkju.

Myndirnar hér að neðan gefa vísbendingu um fegurð verkanna en ekkert jafnast á við að sjá þau á staðnum. Verið velkomin.

Vídalínskirkja
11:00
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta