Miðnæturguðsþjónusta verður að venju í Garðakirkju kl. 23:00 á aðfangadag. Athugið breyttan messutíma. Benedikt Sigurðsson leiðir stundina og flytur hugvekju. Félagar úr Gospelkór Jóns Vídalíns syngja við undirleik Ingvars Alfreðssonar.
Miðnæturguðsþjónusta á aðfangadag er hátíðleg og mikilvæg hefð fyrir marga. Hátíðleikinn verður vart meiri en þegar Heims um ból er sungið við kertaljós. Verið öll hjartanlega velkomin í fallegu kirkjuna okkar.
Sóknarnefnd og starfsfólk Garðasóknar óskar þér og þínum gleðilegrar og hamingjuríkrar jólahátíðar.
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi