Guðsþjónusta í Vídalínskirkju - upphaf fermingarundirbúnings 2027.

Sr. Matthildur Bjarnadóttir og sr. Benedikt Sigurðsson þjóna. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar.

Fermingarbörn vorsins 2027 ásamt foreldrum/forráðamönnum boðin velkomin.

------------------

Sunnudaginn 26. apríl n.k. hefst fermingarundirbúningurinn formlega í Garðabæ með því að við bjóðum fermingarbörnum og aðstandendum þeirra til guðsþjónustu kl.11:00 í Vídalínskirkju. Stundin er sniðin að því að upplýsa og bjóða ykkur sérstaklega velkomin inn í þessa fallegu samleið sem fermingarveturinn er í lífi fjölskyldunnar.

Strax að lokinni guðsþjónustunni er stuttur fundur þar sem skráning á fermingardagana er kynnt en hún hefst miðvikudaginn 29. apríl. Farið verður yfir helstu tímasetningar á haustönninni svo sem fermingarferðalög í Vatnaskóg, fermingarfræðslutíma og fermingardaga sem í boði eru. Að fundi loknum verður hægt að koma með fyrirspurnir eða senda póst á prestar@gardasokn.is sem yrði svarað eftir helgina.

Boðið verður upp á léttar veitingar í safnaðarheimilinu í fundarlok.

Vídalínskirkja
11:00
Sr. Benedikt Sigurðsson
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Jóhann Baldvinsson
Kór Vídalínskirkju
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta