Messa í Vídalínskirkju

Messa með altarisgöngu í Vídalínskirkju kl. 11:00. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson predikar og þjónar fyrir altari. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar og mun kórinn m.a. flytja lagið „Við freistingum gæt þín“ sem Haukur Morthens gerði ódauðlegt á sínum tíma. Fermingarungmenni og fjölskyldur eru sérstaklega hvött til að mæta og ganga til altaris fyrir fermingarnar.
Messukaffi að lokinni athöfn.

Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 (ath. í vetur verður sunnudagskólinn í kennslustofu í gámaeiningu við hlið skólans). Messukaffi og leikur eftir samveruna.

Sunnudagaskóli í safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 11:00. Messukaffi og litir eftir samveruna.

Vídalínskirkja
Sunnudagur 9. mar
11:00
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson
Jóhann Baldvinsson
Félagar úr kór Vídalínskirkju
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta

Hafa samband