Messa í Vídalínskirkju 31. maí
Á sunnudaginn verður messa með altarisgöngu í Vídalínskirkju klukkan 11:00. Sr. Matthildur Bjarnadóttir þjónar fyrir altari.

Þetta er síðasta messa Jóhanns Baldvinssonar sem organista í Vídalínskirkju en hann lætur af störfum í lok sumars eftir farsæl 29 starfsár við söfnuðinn. Af þeirri ástæðu verður sannkölluð tónlistarveisla í messunni. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns, Særún Rúnudóttir syngur einsöng og Guðrún Þórarinsdóttir leikur á víólu.

Eftir stundina verður messukaffi í safnaðarheimilinu.

Vídalínskirkja
Sunnudagur 31. maí
11:00
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Jóhann Baldvinsson
Félagar úr kór Vídalínskirkju
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta