Þriðjudaginn 7. apríl verður Vorbingó í opnu húsi sem sr. Benedikt Sigurðsson stjórnar af sinni alkunnu snilld.
Kyrrðarstund hefst í Vídalínskirkju kl. 12:00 og opið hús í safnaðarheimilinu kl. 12:30.
Boðið er upp á súpu og brauð á vægu verði.
Allir eru velkomnir í kyrrðarstund í Vídalínskirkju og á opið hús í safnaðarheimilinu.
Kyrrðar- og íhugunarstund er haldin hvern þriðjudag kl 12:00 í Vídalínskirkju. Kyrrðarstund er í formi stuttrar helgistundar þar sem fólk getur komið og setið í þögninni og íhugað, bæði fyrir stund sem hefst kl 12:10, sem og á meðan stundin fer fram. Leikin er falleg og róandi tónlist í bland við bænir og annað uppbyggilegt efni.
Stundirnar byrja með þögn og íhugun en 10 mínútur yfir 12 hefst tónlistarflutningur. Fyrirkomulagið er á þann veg að það skiptast á tónlistaratriði, ritningarlestrar og fyrirbænir en stundunum lýkur á að sungin er sálmur og flutt blessun.