Kirkjulistavika 2026

Dagana 8.-15. febrúar fer fram kirkjulistavika í söfnuðum Kjalarnessprófastsdæmis. Þema vikunnar er „Í skugga vængja þinna“.

Á meðan vikunni stendur verða 16 viðburðir, t.d. tónleikar, gjörningur, myndlistasýningar ofl. í kirkjum í Kjalarnessprófastdæmisins

Allar upplýsingar um dagskrá kirkjulistaviku er að í auglýsingunni hér að neðan og nánari upplýsingar má finna hér.

Aðgangur ókeypis og verið öll hjartanlega velkomin.

 

Í Vídalínskirkju verða eftirfarandi viðburðir:

8. febrúar - Tónlistarguðsþjónusta í Vídalínskirkju

Sálmar eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason. Tónlistarflutningur verður í höndum Jóhanns Baldvinssonar og Kórs Vídalínskirkju. Sr. Benedikt Sigurðsson þjónar fyrir altari.

Verkefnið “Í skugga vængja þinna”, samstarfsverkefni Vídalínskirku og Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ, kynnt. Myndlistarkonurnar eru Álfheiður Ólafsdóttir, Hulda HreinDal Sigurðardóttir, María Manda og María Rún Þrándardóttir og vinna myndverk tengt yfirskrift kirkjulistavikunnar og afraksturinn birtist við opnun myndlistasýningar 15. febrúar. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.

10. febrúar - Kyrrðar- og menningarstund í safnaðarheimili Vídalínskirkju

Tónlist, íhugun og fyrirbæn undir kjörorði kirkjulistavikunnar.

15. febrúar - Guðsþjónusta og opnun myndlistarsýningar í Vídalínskirkju

Sr. Sigurvin Lárus Jónsson predikar og þjónar fyrir altari. Sigurður Flosason leikur á saxafón. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Í lok guðsþjónustunnar verður myndlistarsýningin “Í skugga vængja þinna” opnuð í Vídalínskirkju og safnaðarheimili. Það er samstarfsverkefni Vídalínskirku og Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ.

Myndlistarkonurnar sem taka þátt í sýningunni eru Álfheiður Ólafsdóttir, Hulda HreinDal Sigurðardóttir, María Manda og María Rún Þrándardóttir.

Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.

 

Vídalínskirkja
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta