Jóla- og hátíðartónleikar Gospelkórs Vídalínskirkju

Gospelkór Vídalínskirkju heldur sína árlegu jólatónleika sunnudaginn 29. nóvember kl. 20:00 í Vídalínskirkju.

Tónleikarnir eru helgaðir minningu Kristófers Bergmanns Skúlasonar, sem lést í sumar eftir langa baráttu við Duchenne-vöðvarýrnun. Allur aðgangseyrir tónleikanna rennur því óskiptur til Duchenne-samtakanna á Íslandi.

Kristófer greindist með þennan alvarlega vöðvarýrnunarsjúkdóm aðeins fimm ára gamall og tókst á við hann af mikilli reisn og hugrekki allt til síðasta dags.

Fyrir átta árum gekk Kristófer til liðs við Gospelkór Vídalínskirkju og varð með tímanum órjúfanlegur hluti af því hlýlega og dýrmæta samfélagi sem þar hefur myndast. Kórstarfið var honum mikils virði, veitti honum sjálfstraust, gleði og vináttu. Í Vídalínskirkju átti hann sinn stað og setti mark sitt á starfið. Með tónleikunum vilja aðstandendur heiðra minningu Kristófers og um leið styðja við mikilvægt starf Duchenne-samtakanna á Íslandi. Á myndinni hér að ofan má sjá Kristófer syngja með Gospelkórnum á jólatónleikunum 2024.

Hljómsveitina skipa:
Ingvar Alfreðsson, kórstjórn og píanó.
Benedikt Brynleifsson, trommur.
Jóhann Ásmundsson, bassi.
Reynir Snær Magnússon, gítar.

Með miðakaupum leggur þú góðu málefni lið og tekur þátt í að heiðra minningu Kristófers.

Miðaverð 5.000 kr.

 

Miðasala hér að neðan

Vídalínskirkja
Sunnudagur 29. nóv
20:00
Ingvar Alfreðsson
Gospelkór Vídalínskirkju
Hleð inn ...
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta