Föstudaginn 31. júlí lét Jóhann Baldvinsson af störfum sem organisti Garðasóknar eftir 29 ára farsælt starf. Starfsferill Jóhanns nær þó enn lengra aftur en hann hóf störf sem organisti aðeins 18 ára gamall, fyrst á Möðruvöllum í Hörgárdal. Leiðir hans lágu víða, m.a. til Þýskalands þar sem hann sótti sér framhaldsmenntun í tónlist. Það er Garðbæingurinn Agnar Már Magnússon sem tekur við keflinu af Jóhanni og bíður hans ærið starf.
Jóhann Baldvinsson hóf störf sem organisti og stjórnandi Kórs Vídalínskirkju árið 1997. Hann tók að auki við Garðakórnum, kór eldri borgara í Garðabæ, árið 2005 og stjórnar honum enn. Jóhann hefur raddsett mikið af tónlist sérstaklega fyrir báða kórana, meðal annars íslensk lög, gömul dægurlög, sálma og fleira.
Eins og bæjarbúar þekkja þá er Jóhann einstaklega hlýr og félagslega þenkjandi í starfi sínu. Hann hefur lagt mikla áherslu á að kórstarf skapi lífsgleði, samkennd og félagsskap og vinni gegn einangrun, sérstaklega eldra fólks. Auk þess hefur hann haldið fjölmarga tónleika og kallað til starfa ýmsa tónlistarmenn og söngvara. Jóhann var einnig ein af driffjöðrunum í því að safna fé og kaupa nýtt orgel í Vídalínskirkju árið 2013.
Jóhann Baldvinsson fékk heiðursviðurkenningu Garðabæjar árið 2022 fyrir ómetanlegt starf í þágu menningar í bænum.Hann hlaut auk þess Garðasteininn árið 2023 fyrir að auðga mannlíf í Garðabæ með framúrskarandi störfum í þágu tónlistar- og safnaðarstarfs. Viðurkenningin var veitt af Rótarýklúbbnum Görðum en klúbburinn hefur veitt Garðasteininn einstaklingi eða hópi sem hefur unnið sérstaklega góð störf í þágu bæjarbúa árlega frá 2010.
Jóhann hefur sannarlega sett svip sinn á kirkjustarfið og menningarlífið í Garðabæ á þeim 29 árum sem hann hefur búið og starfað í bænum. Sóknarnefnd Garðasóknar þakkar Jóhanni fyrir sitt góða framlag og einstaklega vel unnin störf í hartnær þrjá áratugi í þágu sóknarinnar og bæjarbúa og óskar honum velfarnaðar á þessum nýja kafla lífsins sem nú tekur við.