Hollvinafélag Garðakirkju verður stofnað 26. ágúst nk.

Í tilefni af 60 ára vígsluafmæli Garðakirkju hefur verið ákveðið að stofna Hollvinafélag Garðakirkju en kirkjan hefur verið sameiningartákn og stolt Garðbæinga um langa tíð. Stofnfundur verður í Garðakirkju miðvikudaginn 26. ágúst kl. 17:30.

Tilgangur félagsins er að styðja við Garðakirkju, kirkjustaðinn og starfsemi sem þar fer fram, stuðla að vönduðu viðhaldi kirkjunnar og varðveislu menningar-, sögu- og minjaverðmæta hennar til framtíðar, efla vitund og fræðslu um staðinn og taka þátt í að móta framtíðarsýn hans í samstarfi við þá sem fara með lögbundið eða samningsbundið hlutverk á staðnum.

Dagskrá fundarins:
  1. Setning fundar
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Stofnun félagsins
  4. Samþykktir félagsins
  5. Ákvörðun um félagsgjald
  6. Kosning stjórnar og varamanna
  7. Kosning skoðunarmanns og varamanns
  8. Önnur mál
  9. Fundarlok

 

Allir sem mæta á fundinn geta skráð sig sem stofnendur.

Verið hjartanlega velkomin á stofnfundinn.

Sóknarnefnd Garðasóknar

Garðakirkja
Miðvikudagur 26. ágú
17:30
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta