Hátíðarmessa með þátttöku Kvenfélags Garðabæjar í Garðakirkju 1. desember kl. 11:00.

Hátíðarmessa í Garðakirkju kl. 11:00.
Fyrsta sunnudag í aðventu er fallegur siður í Kvenfélagi Garðabæjar í heiðri hafður en þá koma félagskonur að messuhaldi í Garðakirkju. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson þjóna fyrir altari. Feðginin Ariel og Esja syngja. Steinunn Bergmann varaformaður Kvenfélags Garðabæjar flytur hugleiðingu. Sigríður Jóhannesdóttir og Sigríður Stefánsdóttir flytja ritningarlestra.

Félagar úr kór Vídalínskirkju leiða safnaðarsöng undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Ljósastund í Garðakirkju kl. 15:15.

Árleg Ljósastund í Garðakirkju er ávallt haldin á fyrsta sunnudegi í aðventu. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson leiða athöfnina. Á Ljósastund minnast kirkjugestir látinna ástvina, eiga uppbyggilega og nærandi samveru. Við kveikjum lifandi ljós bæði inni og úti og hugsum til þeirra sem farnir eru.
Anna Ýr Böðvarsdóttir flytur ávarp og Jóhanna Guðrún Jónsdóttir syngur við undirleik Ingvars Alfreðssonar.

Tónleikar í Vídalínskirkju kl. 20:00.
Árlegir Jólatónleikar Gospelkórs Jóns Vídalín í Vídalínskirkju. Miðaverð er aðeins 4.000 kr. og rennur óskipt til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda.

 

Ath. sunnudaginn 1. desember er ekki messað í Vídalínskirkju.

Garðakirkja
Sunnudagur 1. des
11:00
Sr. Bjarni Karlsson
Jóhann Baldvinsson
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta

Hafa samband