Hin árlega konudagsmessa verður í Vídalínskirkju sunnudaginn 22. febrúar kl. 11:00. Messan er hin glæsilegasta í alla staði. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur og Helga Björk Jónsdóttir djákni þjóna fyrir altari.
- Karen Kjartansdóttir samskiptafulltrúi á Veðurstofunni flytur ávarp.
- Una Torfa syngur.
- Gospelkór Jóns Vídalíns syngur undir stjórn Ingvars Alfreðssonar.
- Pétur Valgarð Pétursson leikur á gitar.
Messukaffi og glæsileg tískusýning frá ILSE Jacobsen í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 og í safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 11:00.
Hátíðarguðsþjónustunni verður útvarpað á RÚV Rás 1 og beint streymi verður á YouTube- og Facebooksíðum Vídalínskirkju.