Guðsþjónusta í Vídalínskirkju 8. september kl. 11. Upphaf fermingarstarfsins

Nú er fermingarfræðsla vetrarins að hefjast. U.þ.b. 90% barna á fermingaraldri í Garðabæ hafa valið að fermast í Vídalínskirkju, Garðakirkju eða Bessastaðakirkju um alllanga tíð. Fermingarfræðslan er viðamikill þáttur í fermingarundirbúningnum og eiga fermingarbörnin eftir að upplifa skemmtilegar stundir í vetur.

Í guðsþjónustunni 8. september eru fermingarbörn vorsins 2025 og foreldrar þeirra sérstaklega boðin velkomin. Eftir athöfnina verður fundur þar sem farið verður yfir helstu þætti í fermingarstarfinu. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sr. Matthildur Bjarnadóttir, sr. Sigurvin Lárus Jónsson og Benedikt Sigurðsson þjóna. Gospelkór Jóns Vídalíns syngur undir stjórn Ingvars Alfreðssonar í guðsþjónustunni.

Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 og í Safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 11:00.

Vídalínskirkja
Sunnudagur 8. sep
11:00
Benedikt Sigurðsson
Ingvar Alfreðsson
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta

Hafa samband