Fjölskylduguðsþjónusta í Vídalínskirkju 1. september kl. 11

Nú er vetrarstarfið að hefjast í Vídalínskirkju. Fyrsta messa haustsins verður sunnudaginn 1. september n.k. Þetta er fjölskylduguðsþjónusta sem markar upphaf sunnudagaskólans á komandi vetri.

Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, Benedikt Sigurðsson guðfræðingur og fræðarar sunnudagaskólans leiða stundina.

Barnakórar Vídalínskirkju syngja undir stjórn Ingvars Alfreðssonar og Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur.

Vídalínskirkja
11:00
Sr. Benedikt Sigurðsson
Ingvar Alfreðsson
johannagudrun
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta