Dagskrá helgihalds um jól og áramót

Hátíðleikinn mun sannarlega svífa yfir vötnum  í Garðakirkju og Vídalínskirkju um jól og áramót. Helgihaldið er samkvæmt hefðum, enda eru hefðir mikilvægar ekki síst um hátíðirnar. Tónlistin skipar ríkan þátt í athöfnunum og tónlistarfólkið er meðal þeirra fremstu á Íslandi í dag.  Rétt er að benda á að messutímum á aðfangadag var flýtt um hálftíma fyrir tveimur árum og af góðri reynslu verður sama fyrirkomulag aftur í ár. Aftansögnurinn í Vídalínskirkju hefst kl. 17:30 og miðnæturguðsþjónustan í Garðakirkju verður kl. 23:00.

Aðfangadagur

Aftansöngur í Vídalínskirkju kl. 17:30. Sr. Matthildur Bjarnadóttir þjónar fyrir altari. Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari syngur einsöng. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Athöfnin verður í beinu streymi á facebook.com/vidalinskirkja og á YouTube rás kirkjunnar sem finna má í flestum snjallsjónvörpum.

Miðnæturguðsþjónusta í Garðakirkju kl. 23:00. Sr. Benedikt Sigurðsson leiðir stundina og predikar. Félagar úr Gospelkór Jóns Vídalíns syngja við undirleik Ingvars Alfreðssonar.

Jóladagur

Hátíðarmessa í Vídalínskirkju kl. 14:00 Sr. Benedikt Sigurðsson þjónar og sr. Sigurvin Lárus Jónsson predikar. Rannveig Káradóttir syngur einsöng. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Hátíðarguðsþjónusta í Ísafold kl. 15:30 Sr. Benedikt Sigurðsson og sr. Sigurvin Lárus Jónsson þjóna. Kór Vídalínskirkju syngur. Organisti er Jóhann Baldvinsson.

Gamlársdagur

Sameiginlegur aftansöngur Garðaprestakalls í Garðakirkju kl. 17:00 Sr. Hans Guðberg Alfreðsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt Vilborgu Ólöfu Sigurðardóttur djákna. Álftaneskórinn syngur falleg lög við undirleik Ástvalds Traustasonar organista.

Nýársdagur

Sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjónar. Björg Fenger forseti bæjarráðs Garðabæjar flytur hátíðarerindi. Hjónin Rannveig Káradóttir og Peter Aishe flytja tónlistaratriði með jazzsveiflu. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Beint streymi á facebook.com/vidalinskirkja og á YouTube rás kirkjunnar sem finna má í flestum snjallsjónvörpum.

 

Nánari upplýsingar um helgihaldið færðu með því að smella á auglýsinguna hér að neðan.

Vídalínskirkja, Garðakirkja
Sr. Benedikt Sigurðsson
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson
Ingvar Alfreðsson
Jóhann Baldvinsson
Kór Vídalínskirkju
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta