Dagskrá helgihalds í október

Margt áhugavert er á dagskrá í október að venju:

Sunnudagur 5. október

Kl. 11:00 Bangsa- og gæludýrablessun í Vídalínskirkju – Fjölskylduguðsþjónusta.
Sr. Benedikt Sigurðsson og sr. Sigurvin Lárus Jónsson þjóna. Barnakórar Vídalínskirkju syngja undir stjórn Ingvars Alfreðssonar og Jóhönnu Guðrúnar.

Kl. 11:00 Batamessa í Garðakirkju. Sr. Bjarni Karlsson þjónar fyrir altari. Vitnisburður frá vinum í bata. Ólöf Sigursveinsdóttir leikur á selló. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja, orgelleikari er Kristín Jóhannesdóttir.

Sunnudagur 12. október

Kl. 11:00 Innsetningarguðsþjónusta í Vídalínskirkju.
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson prófastur setur sr. Benedikt Sigurðsson inn í embætti prests og sr. Sigurvin Lárus Jónsson þjónar. Ásgerður Sara Hálfdanardóttir leikur á píanó og Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar.

Sunnudagur 19. október

Kl. 11:00 Gospelgleði í Vídalínskirkju.
Gospelkór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Ingvars Alfreðssonar. Sr. Matthildur Bjarnadóttir leiðir stundina.

Sunnudagur 26. október

Kl. 11:00 Bleik messa í Vídalínskirkju.
Samstaða með krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra í tilefni af Bleikum október. Sr. Benedikt Sigurðsson þjónar fyrir altari. Hrafnhildur Einarsdóttir flytur hugvekju út frá eigin reynslu af baráttu við krabbamein. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Smelltu á auglýsinguna hér neðst til að stækka hana.

Sr. Benedikt Sigurðsson
Sr. Bjarni Karlsson
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson
Ingvar Alfreðsson
Jóhann Baldvinsson
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
Kór Vídalínskirkju
Gospelkór Jóns Vídalín
Eldri barnakór Vídalínskirkju
Yngri barnakór Vídalínskirkju
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta