Bleik messa í Vídalínskirkju kl. 11:00. Samstaða með krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra í tilefni af Bleikum október.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar og flytur hugleiðingu út frá því sem hún hefur lært af því að greinast með krabbamein.
Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Agnars Más Magnússonar en forspilið verður í höndum Aríels Péturssonar og barnanna hans tveggja, Jökuls Orra og Esju.
Hægt verður að styrkja krabbameinsfélagið í messukaffinu.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 (ath. gengið er inn um aðalinngang skólans).
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 11:00.
Minnum á Bleikan jazz, jazztónleika til styrktar ljósinu, í Vídalínskirkju sama dag klukkan 17:00 í Vídalínskirkju.