Batamessa í Garðakirkju

Batamessa febrúarmánaðar verður í Garðakirkju n.k. sunnudag 1. febrúar kl. 17.00 á vegum starfsins í Garðaprestakalli.

Venjulega hefur febrúarmessan verið í Bessastaðakirkju en þar sem kirkjan er lokuð vegna viðgerða verður batamessan í Garðakirkju eins og á síðasta ári.

Vinir í bata í Garðaprestakalli bjóða til þessarar messu og sr. Hans Guðberg Alfreðsson annast messuna. Um tónlistina sjá Ellen Kristjánsdóttir og Ástvaldur Traustason. Það verða vitnisburðir Vina í bata og hefðbundin batamessa. Við ætlum að eiga góða stund saman, iðka 11. sporið, njóta þess að hitta aðra Vini í bata og bjóða með okkur gestum.

Að messu lokinni bjóða vinir í bata upp á kaffi og hressingu í Safnaðarheimilinu að Brekkuskógum 1, sem er beint á móti golfvellinum á Álftanesi.

Allir eru velkomnir í batamessu og t.d. upplagt að taka fermingarbörnin með.

 

Athygli er vakin á því að Vinir í bata ákváðu í dag, 29. janúar, að fresta áður auglýstri batamessu í Garðakirkju sem vera átti 1. febrúar um viku eða til 8. febrúar. Er það gert af tillitsemi við þá fjölmörgu sem horfa vilja á úrslitaleikina á EM í handbolta. Ef lukkan er með okkur mun Íslenska landsliðið vera berjast um titilinn

Garðakirkja
Sunnudagur 8. feb
17:00
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson
Ástvaldur Traustason
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta