Áhugaverð dagskrá um páskana

Fimmtudagur 17. apríl – Skírdagur

Kl. 20:00 Helgistund og afskrýðing altaris í Vídalínskirkju. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson þjónar og Þórunn Sveinbjarnardóttir flytur hugleiðingu. Erla Björg Káradóttir og Jóhanna Ósk Valsdóttir syngja, organisti er Jóhann Baldvinsson.

Föstudagur 18. apríl – Föstudagurinn langi

Kl. 15:00 Helgiganga frá Vídalínskirkju að Garðakirkju. Ólafur Sæmundsson sóknarnefndarmaður leiðir gönguna.

Kl. 16:00 Helgiganga frá Bessastaðakirkju að Garðakirkju. Vilborg Ólöf Sigurðardóttir djákni leiðir gönguna.

Kl. 17:00 Helgistund með kórsöng og Passíusálmalestri í Garðakirkju. Vilborg Ólöf Sigurðardóttir djákni leiðir stundina. Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari les valda Passíusálma. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Sunnudagur 20. apríl – Páskadagur

Kl. 08:00 Hátíðarguðsþjónusta í Vídalínskirkju. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson þjónar. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Birkir Freyr Matthíasson leikur á trompet. Morgunverður í safnaðarheimilinu að lokinni athöfn.

Kl. 08:00 Hátíðarguðsþjónusta í Garðakirkju. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar.

Kl. 11:00 Hátíðarguðsþjónusta á Ísafold. Benedikt Sigurðsson guðfræðinemi leiðir stundina. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Beint streymi frá athöfnum á skírdag og páskadag á facebook.com/gardasokn.

Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd Garðasóknar senda Garðbæingum bestu óskir um kærleiksríka og gleðilega páskahátíð.

 

Smelltu á auglýsinguna hér að neðan til að sjá hana stærri.

Vídalínskirkja, Garðakirkja
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta

Hafa samband