Agnar Már Magnússon tók við starfi sem tónlistar- og kórstjóri Garðasóknar frá og með 1. ágúst sl. Hann tekur við starfinu af Jóhanni Baldvinssyni sem lét af störfum af aldurs sökum eftir 29 ár í starfi.
Agnar Már er Garðbæingur og mögum kunnur fyrir tónlistarstarf sitt enda var hann útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2010. Hann lauk burtfararprófi frá tónlistarskóla FÍH og Conservatorium van Amsterdam og hélt þaðan til New York í einkanám. Hann er einnig með mastersgráðu í tónsmíðum frá LHÍ.
Agnar hefur sent frá sér 7 hljómplötur í eigin nafni. Hann hefur margoft verið tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna og þrisvar hlotið þau. Á tónlistarferli sínum hefur hann að auki unnið til ýmissa verðlauna og komist í undanúrslit í Alþjóðlegu djass-píanókeppninni Martial Solal í París haustið 2002. Hann hefur útsett lög fyrir plötur og söngleiki, starfað með Stórsveit Reykjavíkur í mörg ár, leikið á tónleikum hérlendis sem erlendis og annast tónlistarstjórn í leikhúsi. Agnar sá meðal annars um tónlistina í Söngvaseið, Mary Poppins, Billy Elliot, Matthildi, Emil í Kattholti, Deleríum Búbónis og Galdrakarlinn í Oz fyrir Borgarleikhúsið. Á undanförnum árum hefur Agnar starfað sem djasspíanisti og kennt jafnframt píanóleik við djassdeild MÍT (og í FÍH) en þar starfaði hann frá árinu 2001.
Það er mikill fengur fyrir Garðasókn að fá til starfa svo reynslumikinn og öflugan tónlistarmann sem nú gerir orgelið að sínu hljóðfæri og kemur án efa með ferska vinda inn í kirkjutónlistina.
Á myndinni hér að ofan innsigla Agnar og Sturla, formaður sóknarnefndar, ráðningarsamninginn með handabandi.