Aftansöngur í Vídalínskirkju á aðfangadag kl. 17:30 

Aftansöngur í Vídalínskirkju kl. 17:30 - athugið breytta tímasetningu. Sr. Matthildur Bjarnadóttir þjónar fyrir altari. Hallveig Rúnarsdóttir sópran syngur einsöng. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn  Jóhanns Baldvinssonar organista.

Aftansöngur á aðfangadag er án efa hátíðlegasta og mest sótta guðsþjónusta hvers árs enda mikilvæg fjölskylduhefð fyrir marga. Vídalínskirkja er jafnan þétt setin svo þau sem vilja tryggja sér sæti framarlega þurfa að vera í fyrra fallinu.

Sóknarnefnd og starfsfólk Garðasóknar óskar þér og þínum gleðilegrar og hamingjuríkrar jólahátíðar.

 

Miðnæturguðsþjónusta verður í Garðakirkju kl. 23:00 á aðfangadag. Benedikt Sigurðsson leiðir stundina og flytur hugvekju. Félagar úr Gospelkór Jóns Vídalíns syngja við undirleik Ingvars Alfreðssonar.

Vídalínskirkja
Þriðjudagur 24. des
17:30
Jóhann Baldvinsson
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta

Hafa samband