Kór Vídalínskirkju flytur fjölbreytta aðventu- og jólatónlist, meðal annars lög og texta eftir kórfélaga.
Einsöngvarar koma úr röðum kórfélaga og með kórnum leika Friðrik Vignir Stefánsson á orgel, Peter Tompkins á óbó og Ásdís Arnarsdóttir á flautu. Stjórnandi er Jóhann Baldvinsson. Á hátíðinni flytur Ólafur Sæmundsson sóknarnefndarmaður hugleiðingu og Sigurvin Lárus Jónsson þjónar.
Að lokinni hátíðinni verður boðið upp á heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur í safnaðarheimilinu.
Það er enginn aðgangseyrir og allir eru velkomnir.
Smelltu á auglýsinguna hér að neðan til að sjá nánari upplýsingar.
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi