Kór Vídalínskirkju flytur fjölbreytta aðventu- og jólatónlist.
Ari Ólafsson syngur einsöng og með kórnum leika Björg Brjánsdóttir á flautu, Róbert Þórhallson á bassa og kórstjórinn Agnar Már Magnússon á orgel og píanó. Sr. Benedikt Sigurðsson þjónar.
Að lokinni hátíðinni verður boðið upp á heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur í safnaðarheimilinu.
Það besta í lífinu er ókeypis, segja margir réttilega. Því er enginn aðgangseyrir og allir boðnir velkomnir.