Hátíðarguðsþjónusta í Garðakirkju kl. 11:00.
Fyrsta sunnudag í aðventu er fallegur siður í Kvenfélagi Garðabæjar í heiðri hafður en þá koma félagskonur að messuhaldi í Garðakirkju.
Þjóðbúningnum verður gert hátt undir höfði og eru öll sem eiga slíkan hvött til að mæta í honum til messu. Sr. Matthildur Bjarnadóttir þjónar fyrir altari. Arnheiður Sigurðardóttir flytur hugvekju og Hjördís Vilhjálmsdóttir og Þorbjörg Sigurjónsdóttir lesa ritningarlestra.
Félagar úr kór Vídalínskirkju leiða safnaðarsöng undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.
Sunnudagaskóli er í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 og í Vídalínskirkju á sama tíma og hátíðarmessan kl. 11:00.
Verið öll innilega velkomin!