Aðventuhátíð Garðasóknar í Vídalínskirkju, sunnudaginn 6. desember kl. 17:00

Kór Vídalínskirkju flytur fjölbreytta aðventu- og jólatónlist.

Ari Ólafsson syngur einsöng og með kórnum leika Björg Brjánsdóttir á flautu, Róbert Þórhallson á bassa og kórstjórinn Agnar Már Magnússon á orgel og píanó. Sr. Benedikt Sigurðsson þjónar.

Að lokinni hátíðinni verður boðið upp á heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur í safnaðarheimilinu.

Það besta í lífinu er ókeypis, segja margir réttilega. Því er enginn aðgangseyrir og allir boðnir velkomnir.

Vídalínskirkja
Sunnudagur 6. des
17:00
Sr. Benedikt Sigurðsson
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta