Ljósastund í Garðakirkju

Ljósastund í Garðakirkju kl. 15:00.
Árleg Ljósastund í Garðakirkju er ávallt haldin á fyrsta sunnudegi í aðventu. Sr. Matthildur Bjarnadóttir og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiða athöfnina og flytja stuttar hugvekjur.

Á Ljósastund minnast kirkjugestir látinna ástvina og eiga uppbyggilega og nærandi samveru. Við kveikjum lifandi ljós bæði inni og úti og hugsum til þeirra sem farnir eru.

Sigríður Thorlacíus og Agnar Már Magnússon sjá um tónlistina.

Garðakirkja
Sunnudagur 29. nóv
15:00
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Agnar Már Magnússon
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta