Batamessa í Garðakirkju

Batamessa verður í Garðakirkju sunnudaginn 4. október kl. 11.00 á vegum starfsins í Garðaprestakalli.

Vinir í bata í Garðaprestakalli bjóða til þessarar athafnar og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir annast messuna. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja. Organisti er Jóhann Baldvinsson.

Þetta er hefðbundin batamessa með vitnisburðum Vina í bata.

Að messu lokinni bjóða vinir í bata upp á kaffi og hressingu í Safnaðarheimilinu í Brekkuskógum 1 á Álftanesi, þar sem hægt er að spjalla og ræða sporastarfið.

Allir eru velkomnir í batamessu og er t.d. upplagt að taka fermingarbörnin með.

Garðakirkja
Sunnudagur 4. okt
11:00
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Jóhann Baldvinsson
Félagar úr kór Vídalínskirkju
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta