Nú er vetrarstarfið komið á fulla ferð og opið hús alla þriðjudaga. Kyrrðarstund er ávallt á undan opnu húsi kl 12:00. Súpa og samfélag er þar strax á eftir eða kl. 12:30.
Dagskrá októbermánaðar:
-
6. okt. – Okkar ástsæla söngkona, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, syngur falleg lög á sinn einstaka hátt.
-
13. okt. – Hilmar Hjartarson mætir með nikkuna, spjallar við gesti og fær alla til að syngja með.
-
20. okt. – Söngur og hamingja! Sönghópurinn Gleðisveitin flytur skemmtileg lög sem allir geta sungið með.
-
27. okt. – Bíó-, popp og kók. Skemmtilegri mynd verður varpað á tjaldið og sönn bíóstemmning verður sköpuð í salnum.
Súpa og brauð - verð 1.000 kr.
Verið öll velkomin.