Opið hús í september

Nú er vetrarstarfið að hefjast og opið hús byrjar þriðjudaginn 15. september. Kyrrðarstund er ávallt á undan opnu húsi kl 12:00. Súpa og samfélag er þar strax á eftir eða kl. 12:30. Matarverð er 1.000 kr. Nokkrum sinnum yfir veturinn er boðið upp á veglegri mat og þá breytist verðið í samræmi við það sem er í boði hverju sinni - en verðið er ávallt hóflegt.

Dagskrá sepembermánaðar:
  • 15. sept. – Súpa og spjall um sumarið og veturinn í vændum. Umsjón sr. Benedikt Sigurðsson.
  • 22. sept. – Anna Sigríður Helgadóttir söngkona kemur með fallegan haustblæ.
  • 29. sept. – Haustbingó - veglegir vinningar.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Vídalínskirkja, Safnaðarheimili Vídalínskirkju
Sr. Benedikt Sigurðsson
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta