Nú er vetrarstarfið að hefjast og opið hús byrjar þriðjudaginn 16. september. Opið hús er í safnaðarheimili Vídalínskirkju alla þriðjudaga frá miðjum september fram til maí. Hlé er gert um hátíðar og á tyllidögum.
16. september verða sr. Benedikt og Þórunn með súpu og spjall um sumarið og veturinn í vændum.
Kyrrðarstund er ávallt á undan opnu húsi kl 12:00. Súpa og samfélag er þar strax á eftir eða kl. 12:30. Matarverð er 1.000 kr.
Nokkrum sinnum á tímabilinu er boðið upp á veglegri mat og þá breytist verðið í samræmi við það sem er í boði - en er ávallt hóflegt.