Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur, bauð fundarfólk velkomið og setti fundinn. Eysteinn Haraldsson var kjörinn fundarstjóri og Leópold Sveinsson fundarritari. Eysteinn lagði frá tillögur að stofnun og samþykktum hins nýja félags og voru þær samþykktar einróma. Að því loknu voru Benedikt Einarsson, Guðrún Brynjólfsdóttir, Ingimundur Sigurpálsson, Jóna Rún Gunnarsdóttir og Sigríður Dís Guðjónsdóttir kjörin í stjórn hins nýja félags og Steinunn Bergmann kjörin varamaður. Kristján Þorsteinsson var kjörinn skoðunarmaður og Ólafur Reimar Gunnarsson til vara.
Undir liðnum önnur mál tók fyrstur til máls Ingimundur Sigurpálsson og fagnaði hve margir mættu á þennan fund. Hann þakkaði sóknarnefndinni fyrir að hafa boðað til þessa fundar og haft frumkvæði að stofnun hollvinafélags. Í hugum Garðbæinga er kirkjan mikið sameiningartákn og geymir langa og merkilega sögu. Hann sagði að frá því að Kvenfélagið afhenti sókninni kirkjuna að lokinni endurbyggingu hefði sóknarnefnd borið gæfu til að halda kirkjunni vel við. Engu að síður blasir við að talsvert fé þarf til að halda við kirkjunni um ókomna tíð og vonaði að Hollvinafélagið gæti lagt þar lið.
Einar Sveinbjörnsson bað um orðið og sagði m.a. að Garðakirkja ætti sér stórt pláss í hjarta sér og Fríkirkjan í Hafnarfirði líka. Hann rakti í örfáum orðum sögu kirkjunnar og sagði að frændi hans Óttar Proppé hefði átt ríkan þátt í endurbyggingu kirkjunnar og safnaðarins og að altaristaflan væri gjöf frá fjölskyldunni. Að svo sögðu hét hann því að hann muni taka þátt í starfi félagsins að heilum hug.
Almar Guðmundsson bæjarstjóri tók næstur til máls og vildi óska okkur öllum til hamingju með að nú skuli vera búið að stofna Hollvinafélag Garðakirkju. Hann færði kveðjur frá bæjarstjórnarinni sem styður verkefnið af heilum hug. Hann sagðist vonast til að þau muni sýna það með táknrænum hætti fljótlega.
Sturla Þorsteinsson formaður sóknarnefndar Garðakirkju kom í pontu og sagði m.a. að ekki væri langt síðan sú hugmynd kom upp að stofna Hollvinafélag og þakkaði öllum sem komið hafa að stofnun þessa félags. Garðasókn hefur virkilega þörf fyrir bakland eins og felst í þessu félagi sagði Sturla að lokum.
Sr. Jóna Hrönn kom síðustu upp og vildi taka það fram að þegar fólk vildi koma í sjálfboðna þjónustu fyrir kirkjuna væri það sannarlega ekki sjálfsagt. Hún vildi þakka þeim sem hefðu gefið kost á sér í þetta starf og minnti á að kirkjan hefði verið endurbyggð af sjálfboðaliðum eins og Kvenfélaginu og erlendum stúdentum sem komu sérstaklega til landsins í þeim erindagjörðum. Hún sagði að það væri mikið álag á sóknarnefndinni, þar sem við erum stærsta sóknin og með eitt öflugasta safnaðarstarfið í landinu en reksturinn væri flóknari en víðast annars staðar þar sem við erum með tvo helgidóma og kirkjugarð til að annast, þannig að kostnaðurinn er mikill.
Eftir að fundi var slitið hélt hin nýstofnaða stjórn sinn fyrsta stjórnarfund og skipti með sér hlutverkum skv. eftirfarandi:
Næstu vikur verða nýttar til að skrá félagið og fá kennitölu. Þegar því lýkur verður stofnað til bankaviðskipta og bankareikningur stofnaður. Þá fyrst verður hægt að innheimta félagsgjöldin og eru félagsmenn beðnir um að sýna biðlund uns að því kemur.
Á fundinum var opnuð ný vefsíða fyrir Hollvinafélag Garðakirkju. Þeir sem vilja skrá sig í félagið geta gert það með því að smella hér.